Kosningardagurinn ógurlegi

HÍMA vill minna fólk á að mæta í göngugötuna þar sem verður bjóða upp á allskyns uppákomur, fjörið hefst kl 15:00. Svo viljum við endilega fá fólk til að mæta í  kosningarkaffi á laugardaginn á Hótel KEA frá kl 14-17.

Sýn HÍMA

Eins og alltaf eru kosningar mikilvægar, og alltaf heyrist að nú sé tækifærið, en þeir sem tala þannig gleyma að hver einn einasti dagur er tækifæri í sjálfu sér. Því Ísland er land tækifæranna. Það að Ísland sé land tækifæranna í dag er engin trygging fyrir því að Ísland verði alltaf land tækifæranna, en þitt tækifæri til að kaskó tryggja framtíð landsins er að kjósa rétt. Sagan sýnir að meðan hægrimenn fara með völd þá vegnar Íslandi vel. Ísland er í dag næst best í heimi. HÍMA vill að Ísland verði best í heimi og ekkert rugl. HÍMA vill réttlátt ríki þannig að ríkisvaldið drepi ekki sköpunargleði og framkvæmdakraft einstaklinga við uppbyggingu atvinnulífs. Í réttlátu ríki er leitað lausna á vandamálum án boða og banna eða ósanngjarnri skattheimtu. Stjórnlyndi og forræðishyggja eiga ekki heima í réttlátu ríki, þar á FRELSI heima..

Hægri síðan

Jæja Hægri Síðan leit dagsins ljós í fyrsta skipti í dag (í mjög langan tíma) við mis góðar undirtektir yfirvalda. Teljum við þó hafa verið góðar undirtektir blaðsins og vonandi hafi verið góð lesning fyrir nemendur skólans. Kannski að við látum heyra í okkur aftur, hver veit.

p.s. hægt er að sjá blaðið hér

Stjórn HÍMA


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Nýir og betri...

Starf félagsins virðist vera óstöðvandi þessa daganana. Við minnum á Pizzafundinn sem haldinn verðu fimmtudaginn 10 maí  kl 17:00 á kosningarskrifstofu Sjálfstæðisflokksins við Hafnarstræti. Eftir pizzafundinn um 19:00 munum við marsera yfir á Strikið og fylgjast með okkar manni í Eurovision, Eiríki Hauksyni

Stefna

Hægrimenn í Menntaskólanum á Akureyri trúa á frelsi mannsins og mannsandans. Frjáls viðskipti eru grundvöllur viðvarandi hagsældar á Íslandi og forsendur efnahagslegra framfara. Ríkisvaldið á því að lágmarka afskipti sín af viðskiptum einstaklinga og fyrirtækja.

HÍMA telur að rök standi ekki til þess Íslendingar sækist eftir aðild að Evrópusambandinu.


Loksins loksins

Við í hinni öflugu stjórn Hægrimanna í MA höfum nú loksins komið félaginu á internetið. Heimasíðan okkar Hægrisíðan, er bara viðbót við alla þá útgáfustarfsemi sem félagið hefur staðið fyrir árum saman.

Við viljum ekki yfirgang vinstrimanna.

Elfar Halldórsson formaður 4U
Ingibjörg Lind Valsdóttir varaformaður 4T
Gústaf Línberg Kristjánsson ritari 4 H
Kristín Hólm Reynisdóttir gjaldkjeri 4T
Sölvi Rúnar Viginsson áróðursfulltrúi 2T

Tryggjum velferð og fjárhagslegt öryggi, tryggjum hægri stjórn í landinu!


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband